Titill hér


26.03.2012 11:42

Námskeið hjá Guðrúnu Erlu

Við fórum tvær austur á Selfoss á s.l miðvikudag á námskeið hjá Guðrúnu Erlu

Þar lærðum við nýja og skemmtilega aðferð í ræmusaumi og skorið með þríhyrningsstiku
 

Það var hægt að sauma á 3 vegu með ýmsum tilfærslum stjörnu eða sexhyrning í teppi eða dúk

Svo var kennd aðferð við að sauma dúk beint á bak og vatt sem heitir blómstrið eina

Við lærðum líka nýja aðferð við bindingu og sitt lítið af hverju

Alltaf gaman að læra eitthvað nýtt en tíminn var bara allt of stuttur hefði mátt vera heill dagur til að geta gert allt sem manni langaði til

Takk fyrir okkur Guðrún Erla hlökkum til að koma næst og læra eitthvað nýtt þú ert snillingur

26.03.2012 11:40

Saumadagur

Við saumuðum s.l þriðjudag eins og venjulega
 

Við erum búnar að vera mjög duglegar að hittast og sauma í hverri viku

Set hér inn nokkrar nýjar myndir

Á morgun er saumadagur hjá okkur

 

15.03.2012 00:14

GARDÍNURNAR KOMNAR UPP

Í GÆR VAR SAUMADAGUR HJÁ OKKUR

Við kláruðum að sauma gardínurnar og koma þeim upp og erum mjög montnar af þeim

Það saumaði hver okkar eina kerlingu og síðan var ráðist í alla bútana og þeir saumaðir saman þvers og krus og úr því var þetta lystaverk til

Þær taka sig vel út í vinnustofunni okkar og eiga eftir að ylja okkur vel við saumaskapinn

Næst saumum við þriðjudaginn 20 mars

Nýjar myndir eru í albúmi

07.03.2012 10:59

Suðurnes

Við fórum í gær í heimsókn suður í Garð og áttum þar góðan saumadag með suðurnesjalúsum

Við mættum hjá þeim kl 5 og saumuðum til kl 22 

Takk fyrir okkur stelpur það var gaman að hitta ykkur Gerða við söknuðum þín

Veðrið var heldur orðið leiðinlegt á leiðinni heim og mikil hálka en við komumst allar heilar heim

nýjar myndir í albúmi

01.03.2012 11:54

Saumadagur

Við hittumst nokkrar síðasta þriðjudag og saumuðum  

 Við geymdum gardínusauminn að þessu sinni því það vantaði nokkrar í hópinn

Við fengum góðan gest til okkar Brynju Kjerúlf frá Akranesi

Næsta þriðjudag ætlum við að leggja land undir fót og fara suður í Garð í heimsókn og sauma með suðurnesjalúsunum ef veður leifir

Nýjar myndir í albúmi


 


 

 

20.02.2012 21:15

Gardínusaumur

Við saumuðum í dag og var haldið áfram að hanna og sauma gardínurnar fyrir vinnustofuna okkaremoticon
Allir afgangar voru tíndir til og saumaðir saman bæði ræmusaum og svo hálfkláraðar blokkir og bara allt sem til var saumað saman og út komu allskonar mynstur emoticon  
Við eigum þó samt eftir að klára  og bæta við en erum langt komnar með það
Þetta er mjög skemmtilegt verkefni hjá okkur þar sem við leggjum allt saman um að hanna þessi lystaverk emoticon  
Næsti ætlum við að sauma þriðjudaginn 28 febrúar og klárum þá verkefnið emoticon  
Nýjar myndir í albúmi

15.02.2012 10:53

Saumadagur

Við saumuðum í gær og var skemmtilegt verkefnið okkar emoticon 
 Við erum að hanna gardýnur fyrir gluggana á nýju vinnustofunni okkar og verður spennandi að vita hvernig þær verða þegar til kemur emoticon
Við vorum að læra pappírsaum sem sumar kunnu og kenndu okkur hinum
Það var mikill spenningur og gaman að læra eitthvað nýtt emoticon
Svo var dregið í Mug rug mottuleiknum og notum við þær til að skreyta hjá okkur vegg sem er í vinnustofunni og er skemmtilegt að sjá hugmyndirnar frá hverri og einni emoticon 
 Það er alltaf að verða heimilislegra hjá okkur og er velkomið fyrir alla sem vilja heimsækja okkur á saumadögum að kíkja við og sjá hvað við erum að gera emoticon  
Við erum búnar að ákveða sumarbústaðarferð í Húsafell 20-22 apríl emoticon
 Næsti saumadagur verður á mánudaginn n.k emoticon
Nýjar myndir í albúmi emoticon 
            

13.02.2012 11:16

Saumadagur

Næsti saumadagur er á morgun þriðjudag 14.febrúar emoticon

31.01.2012 20:00

Fyrsti saumadagurinn á árinu 2012

Fyrsti saumadagurinn á árinu 2012 var í dag hjá okkur á nýjum stað í gamla Heiðarskóla lysthúsinu emoticon  Við byrjuðum snemma í morgun og saumuðum fram á kvöld
Það má segja að við höfum aldeilis rúmt á okkur og fór mjög vel um okkur nóg pláss okkur vantar bara dýnur þá getum við lagt okkur líka emoticon  
Við erum með sér saumastofu og gott pláss fyrir framan hana þar sem við erum með fínan hornsófa og er hann óspart notaður og gott að breyta um sæti af og til og spjalla saman og skoða blöð það er orðið mjög  heimilislegt og fínt hjá okkur emoticon
Mikið var saumað í dag enda mikill kraftur í okkur kellum á nýju ári og erum við bara rétt að byrja
Myndir í albúmi

30.01.2012 10:29

Saumadagur

Næsti saumadagur er á morgun á nýja staðnum emoticon emoticon

17.01.2012 22:16

Nýtt húsnæði

Fyrsti fundur á árinu var heima hjá Maríu fimmtudaginn 6 janúar þar sem við ræddum um húsnæðismálin hjá okkur og núna erum við fluttar í nýtt og flott húsnæði upp í Heiðarskóla emoticon emoticon
  
Við verðum þar í Lysthúsinu gömlu handavinnustofunni sem við vorum í fyrir nokkrum árum

Við ætlum að byrja að sauma næsta þriðjudag  24 janúar  kl 13 emoticon

11.01.2012 11:27

Nýtt ár

Gleðilegt nýtt ár
 til allra frá
 Skraddaralúsum

17.12.2011 09:45

Jólafrí

Síðasti saumadagur fyrir jól var hjá okkur á mánudaginn s.l emoticon

Við mættum kl 15 og áttum notalega stund fram á kvöld við saumaskap með ostum og tilheyrandi jóla jólaemoticon

Í nóvember byrjuðum við með skemmtilegan leik innan okkar hóps við saumum eina litla bollamottu hver og ein með sínu sniði svo drögum við og skyptumst á pökkum og er spennandi að sjá hvað kemur úr pakkanum emoticon

Við skraddaralýs óskum öllum þeim sem hafa fylgst með okkur eða verið með okkur á einhvern hátt
GLEÐILEGRA JÓLA og hafið það sem best yfir hátíðirnar emoticon

Nýjar myndir í albúmi

05.12.2011 22:39

Saumadagur

emoticon Saumadagur verður á morgun 6 desember í stjórnsýsluhúsinu

Nú nálgast jólin óðum og um að gera að skella sér í að klára jólagjafirnar emoticon emoticon

15.11.2011 23:15

Saumadagar

Við erum búnar að vera duglegar að sauma höfum hittst á hverjum þriðjudegi og byrjað kl 13 og stundum fyrr til að nota daginn vel og saumum fram eftir degi

Næsti saumadagur er þriðjudaginn 22 nóvember 
Flettingar í dag: 118
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 1368
Gestir í gær: 19
Samtals flettingar: 397823
Samtals gestir: 50414
Tölur uppfærðar: 31.10.2025 06:18:59

Eldra efni



Umsjón með vefsíðu Sigrún Sólmundardóttir

Nafn:

Skraddaralýs

Heimilisfang:

Hvalfjarðarsveit

Um:

Við erum hópur kvenna sem hittumst reglulega og saumum bútasaum Umsjón vefsíðu Sigrún Sólmundardóttir Belgsholti
clockhere

Tenglar