Vatnaskógur 2023

atburður liðinn í

2 mánuði

23 daga



13.09.2010 10:50

Flott sýning

Við fórum 3 á opnun sýningarinnar bút fyrir bút í 30 ár í tilefnis 10 ára afmælishátíðar íslenska bútasaumsfélagsins þar er að sjá mjög flott verk sem gaman var að sjá Við erum stoltar af okkar konum Maríu og Dóru þær eiga báðar teppi á sýningunniemoticon  

Svo er það árshátíðin næsta laugardagskvöld á hótel Sögu og ætlum við nokkrar að fara þangaðemoticon

Næsti saumadagur er á morgun kl 3 á sama stað og venjulega og nú er það undirbúningur fyrir Löngumýri það er alveg að skella á ví ví ví gaman það er bara í næstu viku emoticon

01.09.2010 10:22

Saumadagur

Fyrsti saumadagur var í gær og hittumst við allar hressar og kátar eftir gott sumaremoticon

Við saumuðum allar eina stanley buddu sem María kenndi okkur aðferðina við svo hjálpuðum við henni að klára að sauma buddurnar fyrir íslenska bútasaumsfélagið sem veða til sölu á afmælissýningunni í septemoticon

Næsti saumadagur verður þriðjudaginn 7 september á sama stað og tíma eins og venjulega þá ætlum við að hita upp fyrir Löngumýri emoticon

27.08.2010 10:15

FYRSTI SAUMADAGUR

Þá er búið að ákveða fyrsta saumadag á þessu hausti emoticon emoticon 
  Við byrjum að sauma í Heiðarskóla þriðjudaginn 31 ágúst kl 15 emoticon  
 Þá ætlum við að sauma nokkrar stanley buddur fyrir íslenska bútasaumsfélagið
 Svo er líka bara að hittast og sauma saman og spá í vetrardagsskrána það verður örugglega nóg um að vera á henniemoticon 
 Nú er bara að taka fram saumavélina og kíkja hvað til er af efnum og finna einhver snið til að vinna í vetur það er nóg um úrval að ræðaemoticon emoticon 
Svo ætlum við að sauma allar eins jóladúk sem verðu  spennandi því við verðum með margs konar liti sem hver velur fyrir sig þannig að enginn verður eins
Hittumst allar hressar og kátar sólbrúnar og sælar eftir gott sumaremoticon

16.08.2010 20:24

Sumarferð

Við fórun nokkrar í ferð á suðurlandið til að skoða bútasaums sýninguna bút fyrir bút hjá henni Sigríði sem er í tré og lyst mikið var það nú gaman
 Hún er greinilega mikil lystakona verkin hennar eru svo flott og vel unnin

 Við notuðum líka ferðina og fórum í verslun til að ná okkur í efni fyrir veturinn bæði í wouge og bót svo skruppum við líka í tískubúðina Lindina og fórum ekki tómhentar þaðan út
 Þetta var mjög góður og skemmtilegur dagur hjá okkur eins og alltaf þegar við leggjum land undir fót
 
Nú styttist óðum í haustið og við verðum farnar að sauma áður en við vitum af tíminn líður svo hratt 

Hún María okkar er núna í Reykjavík að kenna konum að sauma stanley buddurnar fyrir íslenska bútasaumsfélagið við ætlum að sauma nokkrar hér heima til að styðja gott málefni Hún er líka komin í stjórn ísl bútasaumsfélagsins og erum við skraddaralýs stoltar af henni
 
Við förum á saumahelgi á Löngumýri 23-26 september

24.06.2010 11:45

um okkur

búin að setja inn á siðuna nýtt í liðnum um okkur efst á síðu emoticon

19.05.2010 23:44

Vorferð

Við fórum til Reykjavík s.l þriðjudag og hittum þar suðurnesjalýsnar sem höfðu heldur betur stækkað þar komu 4 nýjar konur meðemoticon
  Við byrjuðum á því að fara í Virku til að skoða efni þar í jóladúkinn sem við ætlum allar að sauma eins þó verður hver með sinn og velur sína liti það verður spennandi að sjá þá alla þegar við erum búnar að sauma þáemoticon 
  Svo kíktum við í storkinn þar höfðu sumar aldrei komið
 Það var auðvitað verslað smá eins og gengur og gerist í svona ferðumemoticon 
Við borðuðum  saman á veitingahúsinu Caruso og fengum þar mjög góðan matemoticon 
Komum við allar saddar og sælar heim eftir góðan dagemoticon 
Þetta var lokahittingur á þessu vori svo er bara að sjá til´hvernig sumarið verður ef það verða margir rigningardagar þá kanski hittumst við og gerum eitthvað skemmtilegtemoticon 

Það eru nýjar myndir í albúmi frá sýningunni á sumardaginn fyrsta

05.05.2010 11:15

Slútt

Við hittumst í gær á síðasta saumadegi þennan veturinn því nú taka vorverkin við hjá okkur öllum emoticon 
 
Við ætlum að hafa lokaslútt með ferð í höfuðborgina 18 maí og gera eitthvað skemmtilegt og koma þær líka af suðurnesjunum með okkuremoticon emoticon

Þessi vetur er búinn að vera mjög skemmtilegur og mikið saumað og ekki má gleyma saumahelginni á Löngumýri og saumadögunum sem við höfum átt með öðrum klúbbumemoticon

Það sem stendur upp úr er sýningin okkar stóra á sumardaginn fyrsta sem heppnaðist svo vel og var mjög skemmtilegur dagur og mikill mannfjöldiemoticon emoticon

Við skraddaralýsnar þökkum öllum þeim sem hafa fylgst með okkur í vetur  með ósk um gleðilegt og gott sumaremoticon  

28.04.2010 22:58

Saumadagur

Næsta þriðjudag ætlum við að sauma kl 15 þetta er síðati skipulagði saumadagurinn hjá okkur núna á þessari önnemoticon  

Birgitta bauð okkur heim til sín s.l þriðjudag þar sem við vorum með lítinn fund um starfið okkar og var ákveðið að þær María og Dísa tækju að sér að skypuleggja næsta saumaár og sjá um að koma upplýsingum til okkar ef við mætum ekki á saumadagemoticon 
Elsku Birgitta takk kærlega fyrir að bjóða okkur heimemoticon 

Nú er alveg að koma að gesti no 20000 og langar okkur til að biðja hann um að kvitta sérstaklega í gestabókinaemoticon

25.04.2010 16:18

Sýningin á sumardaginn fyrsta

Sýningin okkar á sumardaginn fyrsta tókst bara mjög vel í alla staði og vorum við  ánægðar og sælar með daginnemoticon 

 Það heimsótti okkur ótal fjöldi mörg hundruð manns 300og eitthvað skrifuðu í gestabókina en margir gleymdu að skrifaemoticon 

 Það kom fólk alls staðar  af landinu margir saumaklúbbar tóku sig saman og svo var líka heil rúta af konum sem voru í skemmtiferð sem kom í heimsókn og margar hittu gamlar vinkonur sem er alltaf svo gaman emoticon .
 
 Veðrið var svo gott þennan dag alveg eins og við vorum búnar að óska eftir glampandi sólemoticon 

 Það má ekki gleyma að þakka karlmönnunum sem komu og hjálpuðu okkur að setja upp og taka niður sýninguna með vinnupallana án þeirra gátum við ekki veriðemoticon  svo líka þeim Jónu og Helgu sem voru í eldhúsinu og helltu á könnurnar og tilheyrandi eldhússtörf ástarþakkir til ykkar allraemoticon 

 Kristrún og Sísa voru með vörur frá quiltbúðinni  og var hægt að versla efni og ýmislegt smádót  er alltaf fjör þegar svoleiðis er á staðnum því það er alltaf hægt að bæta smá í pokann svona að ganni og eiga til í skápnum eða skúffunumemoticon

Við skraddaralýs viljum þakka öllum þeim sem komu og áttu með okkur góðan dag kærlega fyrir komuna með ósk um gleðilegt og gott sumaremoticon emoticon
 
Minnum á gestabókinaemoticon

 Myndir af sýningunni komnar í myndaalbúmemoticon

22.04.2010 00:05

SÝNING

 GLEÐILEGT SUMAR

'I dag er stóri dagurinn hjá okkur skraddaralúsum það er komið að sýningunni sem við ætlum að halda í Fannahlíð í Hvalfjarðarsveit frá kl 10-18 á sumardaginn fyrsta Þar verða til sýnis okkar verk sem við höfum verið að sauma undanfarin ár 
Hlökkum til að sjá sem flesta  

12.04.2010 11:41

Saumahelgi að Vöðlum

Við fórum austur að Vöðlum til hennar Ástu um helgina til að eiga saman góða saumahelgi og var mikið saumað  skrafað borðað og hlegið sem er nauðsynlegt í svona ferðum emoticon 
 Við vorum 7 sem mættum Selma kom á laugardaginn og ég fór heim á laugardagskvöld
 Eins og venjulega var saumað og saumað langt fram á nótt og sofið hratt emoticon  því tíminn líður svo hratt í svona ferðum helgin er búin áður en maður veit af emoticon .
 Við byrjuðum ferðina á því að kíkja í wogue og virku í Reykjavík og síðan var brunað austur í Hveragerði með stoppi á nauðsinlegum stað til að væta kverkarnar og svo borðuðum við kjötsúpu í kjöti og kúnst sem smakkaðiðs bara vel emoticon 
 Svo lá leiðin á Selfoss með stoppi í wogue og bót voru verslanirnar mjög ánægðar að fá okkur í heimsókn því við fórum alls ekki tómhentar út svo á leiðinni heim opnaði bót fyrir okkur og þá var aftur bætt í pokann emoticon 
 Veðrið var ekkert sérstakt rigning og rok svo við sáum ekkert til eldgosins það var svo lágskýjað
 Við fengum heimsókn frá konum úr sveitinni sem eru líka í bútasaum og borðuðu þær með okkur á laugardagskvöldið
 Heim komum við allar sælar og glaðar eftir góða helgiemoticon 
 Elsku Ásta takk fyrir okkur það er alltaf gott að koma að Vöðlum það er svo rúmt um okkur allar emoticon 

 Búið er að ákveða að fara að Löngumýri í haust eins og venjulega

Nýjar myndir í albúmi


ég vil mynna á gestabókina okkar hér á síðunni eða álit endilega kvittið stöku sinnum það er alltaf gaman að sjá að einhver er að skoða síðuna okkar Takk fyrir

08.04.2010 11:06

SÝNING SÝNING SÝNING

 SÝNING emoticon   SÝNING emoticon  SÝNING emoticon   já núna verður sko  bútasaumssýning emoticon 
 
Sumardaginn fyrsta 22 apríl kl 10-18 í félagsheimilinu Fannahlíð í Hvalfjarðarsveit
 
Til sýnis verður allt sem við höfum verið að gera og erum með ábyrjað bæði lítil og stór verkefni

  

  Kaffi og sætubiti verða til sölu á 500 kr
 
Einnig verða til sölu bútalegar smávörur frá okkur
 
Kristrún í Quiltbúðinni verður  á staðnum með vörur til sölu
 
Allir eru velkomnir og vonumst við til að sjá sem flesta til að gleðjast með okkur þennan dag

01.04.2010 22:43

Næsti saumadagur

Næsta þriðjudag ætlum við að sauma á sama tíma kl 15emoticon 

Við förum að Vöðlum til hennar Ástu á saumahelgi 9-11 aprílemoticon

24.03.2010 23:06

Langur saumadagur

Næsta þriðjudag 30 mars verður langur saumadagur við byrjum kl 10 og saumum framm eftir degiemoticon

Nú styttist óðum í sýninguna okkar á sumardaginn fyrsta 22 aprílemoticon   sem verður haldin í Fannahlíð sem er félagsheimili undir hlíðum Akrafjalls

17.03.2010 10:13

Saumadagur

Næsta þriðjudag 23 mars ætlum við að saumaemoticon 
Við hittumst í gær í heimboði hjá henni Helgu Hauks hún bauð okkur heim því hún er að flytja í vor suður í Garð við eigum eftir að sakna þín þear þú flyturemoticon 

Áttum við góða stund þar í góðu yfirlætiemoticon  Takk fyrir okkur elsku Helga en við komum bara í heimsókn á suðurnesin emoticon
Flettingar í dag: 159
Gestir í dag: 62
Flettingar í gær: 99
Gestir í gær: 37
Samtals flettingar: 100087
Samtals gestir: 10202
Tölur uppfærðar: 1.6.2023 21:20:08


Umsjón með vefsíðu Sigrún Sólmundardóttir

Nafn:

Skraddaralýs

Heimilisfang:

Hvalfjarðarsveit

Um:

Við erum hópur kvenna sem hittumst reglulega og saumum bútasaum Umsjón vefsíðu Sigrún Sólmundardóttir Belgsholti
clockhere

Tenglar