Vatnaskógur 2023

atburður liðinn í

2 mánuði

23 daga



14.11.2008 10:50

Heimboð til Dísu í Bjarkarás

Hún Dísa ætlar að bjóða okkur í heimsókn tl sín á morgun emoticon í Bjarkarás og hafa einn langan saumadag vonandi getum við sem flestar komið emoticon Nú fer sá tími að koma að allir eru svo mikið uppteknir og hafa lítinn tíma emoticon en það er alltaf gaman að koma saman og sauma Nýjar myndir frá síðasta saumadegi eru í albúmi

09.11.2008 10:25

Góður dagur

'i gær var heimboðið til þeirra á Akranesi í Skagaquiltshópnum emoticon Við vorum bara tvær við María sem gátum mætt Þetta var mjög góður dagur og lærðum við sitt lítið að hvoru  hjá henni Kristrúnu emoticon í quiltbúðinni sem var mætt  með allt sitt dót með sér þannig að það var hægt að bæta við efnum og hugmyndum  í safnið Ekki má gleyma veitingunum sem voru svo flottar að ekki fórum við svangar heim Takk Takk stelpur fyrir fábæran dag vonandi verður framhald á þessu hjá okkur á næsta ári emoticon

04.11.2008 22:10

Nýr tengiliður

Ég var að setja inn nýjan tengilið sem er mjög flottur þetta er dönsk síða sem ég fann á netinu og er í tengiliðunum hér til hægri á síðunni  Ég sendi póst til þeirra til að forvitnast um bútasaum í Danmörk danskan mín er nú ekki góð emoticon en mér tókst að krafla mig áfram og fékk sendan póst til baka er mjög stolt af sjálfri méremoticon  því hún er búin að skrifa til baka í gestabókina okkar Hlakka til að hitta ykkur á Skaganum á laugardaginn

29.10.2008 10:29

Næsti saumadagur

Næsti saumadagur verður þriðjudaginn 11 nóvember kl 15 á sama stað og venjulega Þá erum við aftur komnar á rétt ról við erum búnar að vera svo duglegar að sauma í haust alltaf vikulega frá því að við byrjuðum Töskudagurinn heppnaðist vel og voru nokkrar töskur saumaðar með nútímalegu sniði og m. fl Við saumuðum frá kl 15-22 með stuttu matar og kaffi hlé ekki má gleyma að borða á svona dögum Nokkrar nýjar myndir eru komnar í albúm

29.10.2008 10:23

Heimboð

Okkur er boðið að koma á saumadag hjá Skagakonum laugardaginn 8 nóvember kl 10 hún Kristrún í quiltbúðinni kemur með eitthvað skemmtilegt.Takk fyrir þetta við ætlum nokkrar að mæta

23.10.2008 21:33

Töskudagur

Næsti saumadagur verður þriðjudaginn 28 okt kl 15 á sama stað og venjulega Við ætlum að hafa þetta langan dag og sauma framm á kvöld og þema dagsins er töskur og buddur Við erum búnar að safna allskonar sniðum til að velja úr og verður spennandi að sjá hver útkoman verður.

14.10.2008 22:12

Næsti saumadagur og nýjar myndir

Við saumuðum í dag og rifjuðum upp frá Löngumýri eins og sjá má á nýju myndunum í albúmi Við söknuðum hennar Maríuemoticon  þar sem hú er einhverstaðar í Frakklandi á ferðalagi og kanski búin að finna fullt af bútabúðumemoticon  þar hver veit. Svo er Heiða að fara líka út um helgina kanski finnur hún eitthvaðemoticon  þar það verður spennandi næsta saumadag að fá fréttir. Við fengum sendar þessar fínu myndir frá henni Þorgerði á Akureyri sem teknar voru á Löngumýri og bjargar hún alveg myndasíðunni okkar því mín vél klikkaði takk kærlega Þorgerður emoticon og vonandi hafið þið það gott þarna fyrir norðan Ég gleymdi að segja frá því að við lærðum á Löngumýri að prjóna tvo sokka á hringprjón sem er alger snilld og erum við komnar á fulla ferð með það svo fengum við líka dekur nudd og alskonar krem til að prufa frá volare takk fyrir þaðemoticon  við vorum alveg endurnærðar eftir það .Næsti saumadagur verður í Heiðarskóla næsta þriðjudag kl 15 emoticon

11.10.2008 14:33

Nýjar myndir

Nú eru komnar inn myndirnar frá Löngumýri en það vantar nokkrar inn koma seinna

09.10.2008 13:52

Næsti saumadagur

Næsti saumadagur verður þriðjudaginn 14 okt á sama stað og venjulega Nú er um að gera að halda áfram að sauma og rifja upp og kanski sauma koddaver eins og á Löngumýri Til ykkar suðurnesjalýs hvernig er þetta með myndirnar við verðum að fá að sjá hvað þið eruð að sauma

08.10.2008 10:39

Hópmynd

Eins og þið sjáið  til hægri á síðunni er lítil mynd af skraddaralúsum sem tekin var á Löngumýri Til að stækka hana er klikkað með músinni einu sinni Get ekki sett nöfnin inn á myndina en set þau hér

neðri röð t.v Selma  Sigrún Sól  Heiðrún  Gauja

efri röð t.v Dóra   Ásta   Dísa   María   Birgitta   Gerða

05.10.2008 22:10

FR'ABÆR SAUMAHELGI

Nú er lokið frábærri saumahelgi á Löngumýri hjá henni Kristrúnu í Quiltbúðinni emoticon emoticon Við komumst allar heilar heim alsælar með bros á vör en dálítil saknaðartár emoticon á kveðjustund þar sem við vorum búnar að vera saman síðan á fimmtudag. Ferðin okkar hófst í Bjarkarási þar sem bílarnir voru lestaðir búið var að skypta um farartæki og var farið á tveimur bílum patról og amerískum pallbíl og ekki veitti af undir allan farangurinn sem fylgdi okkur vá emoticon Veðrið var ágætt hæfði snjóað mikið fyrir norðan en vegirnir auðir svo vorum við með góða bílstjóra þær Maríu og Dóru  Við stoppuðum í nýja Staðarskála og fengum okkur næringu og héldum áfram för norður suðurnesjalýsnar komu aðeins á eftir okkur Þegar komið var á Löngumýri voru saumavélarnar drifnar upp úr töskunum með tilheyrandi fylgihlutum og var byrjað straks að sauma og sníða   saumað var  fram á nótt og byrjað aftur snemma  fram á nótt alla dagana  tíminn var sko nýttur alveg í botn Við lærðum svo margt nýtt sem nýtist okkur vel Við fórum í heita pottinn og slöppuðum vel af á milli og gáfum okkur tíma til að spjalla og kynnast og skoða hjá öðrum konum emoticon Ekki má gleyma stelpunum í eldhúsinu sem sáu um allar veitingarnar  til þess að við myndum ekki leggja af þessa dagana maturinn var svo góður emoticon .Elsku Kristrún Sísa og Auður ástarþakkir til ykkaremoticon  það er alltaf svo gaman að vera með ykkur á svona helgi við komum örugglega aftur. Til ykkar sem voru með okkur þessa helgi viljum við þakka góð og skemmtileg kynni emoticon Endilega kvittið ef þið kíkið við á síðunni okkar Myndirnar koma seinna í albúm

30.09.2008 20:27

NORÐURFERÐIN

Við hittumst í dag og saumuðum vorum allar mættar ekki þarf að spyrja um hvað var rætt þennan daginn auðvitað LÖNGUM'YRI emoticon emoticon allar fullar af tilhlökkun nema hvað bara 1 dagur til stefnu.  Nú er búið að breyta um farartæki nú dugar bara RÚTAemoticon  Við búum svo vel að hafa hana Maríu skólabílstjóra með okkur og treystum við henni það vel og vitum að hún er öllu vön á góðum bíl svo er bara að sjá til með veðrið það verður vonandi ekki bylur eða leiðindi það er bara að komast á staðinn svo sjá bara til með heimferðina emoticon Við ætlum að leggja af stað frá Lambhaga kl 16.30 á fimmtudaginn já fullar af kæti og tilheyrandi Hittumst á Löngumýri

26.09.2008 18:22

5 dagar í Löngumýri

Jæja stelpur nú eru bara 5 dagar í ferðina okkar á Löngumýri emoticon  ótrúlegt en satt vá hvað tíminn flýgur áfram Það var mikil og góð stemming hjá okkur á síðasta saumadegi allt á fullu að skipuleggja fyrir Löngumýri ath með bíla og hver á að keyra Það fylgir okkur svo mikill farangur í þessar ferðir þannig að það þarf að fara á pallbíl og stórum landcruser til að koma öllu fyrir og okkur líka emoticon  Við erum búnar að vera duglegar að sauma þessa dagana og verður næsti saumadagur á þriðjudaginn 30 september þá verður allt klárt emoticon  Heiða er búin að taka ákvörðun og ætlar að sleppa árshátíðinni og koma með okkur norður hún sér örugglega ekki eftir því emoticon Hvað er að frétta af ykkur á suðurnesjunum er ekki allt að verða klárt hjá ykkur gaman væri að fá línu emoticon

18.09.2008 18:43

Næsti saumadagur og nýjar myndir

Næsti saumadagur verður í Heiðarskóla þriðjudaginn 22 september Við erum orðnar svo spenntar að komast á Löngumýri að við höfum hittst í hverri viku til að komast í verulegt saumastuðemoticon  Það er búið að vera mikið stuð hjá okkur og hvert verkið að skapast og vinna upp gamlar syndir það er ábyrjuð verkemoticon  María fór á saumahelgi hjá Bót um síðustu helgi og sýndi okkur hvað hún gerði þar Setti inn nýjar myndir af saumadeginum okkar Suðurnesjalýs ætlið þið að prjóna á Löngumýri??? emoticon Selma og Sigrún eru búnar að kaupa sér saumavélatöskur fyrir nýju vélarnar verða að vera í stíl við ykkur hinaremoticon

11.09.2008 11:06

Næsti saumadagur

Næsti saumadagur verður þriðjudaginn16 sept í Heiðarskóla kl 15 Við hittumst síðasta þriðjudag og saumuðum af kappi Nú fer að koma verulegur spenningur fyrir Löngumýrarhelgina og ætlum við allar að mæta á fimmtudegi til að geta byrjað fyrr Hvernig er með ykkur þarna fyrir sunnan eruð þið búnar að vera á fullu ég bíð eftir myndum
Flettingar í dag: 170
Gestir í dag: 64
Flettingar í gær: 99
Gestir í gær: 37
Samtals flettingar: 100098
Samtals gestir: 10204
Tölur uppfærðar: 1.6.2023 21:43:37


Umsjón með vefsíðu Sigrún Sólmundardóttir

Nafn:

Skraddaralýs

Heimilisfang:

Hvalfjarðarsveit

Um:

Við erum hópur kvenna sem hittumst reglulega og saumum bútasaum Umsjón vefsíðu Sigrún Sólmundardóttir Belgsholti
clockhere

Tenglar