Vatnaskógur 2023

atburður liðinn í

2 mánuði

23 daga



09.01.2008 22:25

Leiðrétting á tímasetningu

Við ætlum að byrja að sauma kl 15 á þriðjudaginn en ekki kl 16 kveðja Sigrún Sól

08.01.2008 12:25

Gleðilegt ár

Gleðilegt nýtt saumaár  Í gær hittumst við í kaffi og meðlæti hjá Birgittu á Hlíðarfæti og ræddum hvenær við ætlum að byrja að sauma og var ákveðið að hafa það á næsta þriðjudag 15 jan kl 15 í Heiðarskóla Setti inn nýjar myndir í albúm

30.12.2007 12:52

Nýjar myndir

Það eru komnar inn nýjar myndir frá því í nóv og des stelpur endilega sendið mér fleiri myndir ef þið eigið kveðja Sigrún Sól

28.12.2007 11:00

Gleðileg jól

Gleðileg jól  fékk senda nýja tengla sem gaman er að skoða hittumst hressar á nýju ári

10.12.2007 17:09

Saumadagur 11 des

Nú er ákveðið að sauma í Heiðarskóla á morgun 11 des  kl 16 og auka smá á jólastemminguna tilvalið að klára jólagjafirnar ef þær eru ekki búnar Hittumst hressar og kátar eins og venjulega

04.12.2007 23:48

Breyting á ferð

Ferðin sem við ætluðum til Gerðu á suðurnesin  þann 11 des verður ekki reynum bara seinna

26.11.2007 18:03

Góður dagur

Laugardaginn 24 nóvember hittumst við 10 saman í Heiðarskóla kl 10 til að sauma og gera eitt sameiginlegt jólverkefni sem suðurnesjalýsnar komu með Þetta var skemmtileg mynd sem var túlkuð á  ýmsan hátt  til að líma á viskustykki nokkrar gerðu svuntu úr því einnig vorum við með ábyrjuð verkefni  Þetta var mjög góður dagur en var allt of fljótur að líða eins og alltaf þegar við hittumst og erum komnar í stuð að sauma Næst ætlum við að fara og heimsækja þær á suðurnesjunum í hesthúsið til Gerðu og taka út aðstæður hjá þeim þann 11 desember

18.11.2007 19:02

Langur laugardagur

Laugardaginn 24 nóvember n.k kl 10 ætlum við að hittast allar í Heiðarskóla og sauma fram á kvöld

12.11.2007 11:04

Saumadagur

Næsti saumadagur er á morgun 13 nóvember í Heiðarskóla kl 16 Hittumst hressar eins og alltaf

29.10.2007 08:15

Saumadagur

Næsti saumadagur er á morgun þriðjudag kl 16 í Heiðarskóla

25.10.2007 14:32

Gestur no 300

það vildi svo skemmtilega til að ég Sigrún Sól var gestur no 300 Það er gaman að sjá hvað margir eru búnir að skoða hjá okkur síðuna á hálfum mánuði

18.10.2007 15:06

Ótitlað Saumadagur

Við hittumst 6 saman í Heiðarskóla og saumuðum frá kl 16-19.30 vorum ýmist að klára verk sem byrjað var á eða bara á nýju Svo voru rifjaðir upp góðu dagarnir á Löngumýri sem voru svo skemmtilegir og góðir Næsti saumadagur verður annan þriðjudag

14.10.2007 15:07

Næsti saumadagur

Næsti saumadagur verður þriðjudaginn 16 október n.k í Heiðarskóla. Ef einhverjir nýjir vilja vera með hafi þá samband við Birgittu sími 4338958 eða mæti bara á staðinn og sjái hvað við erum að gera Allir eru velkomnir að vera með

09.10.2007 16:32

Saumahelgi á Löngumýri

Við fórum 10 saman á saumahelgi á Löngumýri í Skagafirði um síðustu helgi sem Quiltbúðin á Akureyri var með Þetta var mjög góð og skemmtileg helgi og var mikið saumað og hlegið og borðaður góður matur.Mikið var saumað og gaman að sjá sömu verk með mismunandi útfærslum og litum

09.10.2007 16:16

Skraddaralýs

Við erum skraddaralýs og höfum mikinn áhuga fyrir bútasaum og hittumst hálfsmánaðarlega og saumum saman
Flettingar í dag: 170
Gestir í dag: 64
Flettingar í gær: 99
Gestir í gær: 37
Samtals flettingar: 100098
Samtals gestir: 10204
Tölur uppfærðar: 1.6.2023 21:43:37


Umsjón með vefsíðu Sigrún Sólmundardóttir

Nafn:

Skraddaralýs

Heimilisfang:

Hvalfjarðarsveit

Um:

Við erum hópur kvenna sem hittumst reglulega og saumum bútasaum Umsjón vefsíðu Sigrún Sólmundardóttir Belgsholti
clockhere

Tenglar