Vatnaskógur 2023

atburður liðinn í

2 mánuði

26 daga



07.02.2014 14:57

Saumadagur

Við saumuðum síðast 28 janúar og var góð mæting smiley

Við fengum góða gesti komu þær Inga og María frá Skagaquilt og sýndu okkur það sem þær voru að gera yes

Við saumum núna hálfsmánaðarlega byrjum kl 3 í Heiðarskóla og erum fram eftir degi eða kvöldi eftir því hvað við erum í miklu saumastuði

 

Næsti saumadagur er á þriðjudaginn 11 febrúar

Nýjar myndir í albúmi

26.01.2014 16:31

Saumadagur

Næsti saumadagur er á þriðjudaginn 28 janúar á sama stað og venjulega smiley

17.01.2014 11:50

Þá er það ákveðið

Þá er það ákveðið Skraddaralýsnar eru á útleið í maí yes

Í gær voru keyptir farseðlar fyrir 6 lýs til Færeyja 2 maí til 5 maí

Við eigum heimboð í Fuglafjörð þar sem við ætlum að hitta konur sem hafa áhuga á bútasaum

Svo nú er bara að telja niður og láta sig hlakka til cool

15.01.2014 22:08

Saumadagur

Við hittumst og saumuðum í Heiðarskóla í gær smiley

Sumar sauma eða sníða aðrar prjóna alltaf nóg að gera og margar hugmyndir  sem við erum með

Alltaf gaman að hittast og eiga stund saman við spjall og saumaskap eða það sem við erum með á prjónunum cheeky

Við skiptumst á að koma með eitthvað góðgæti með kaffinu svo við deyjum ekki úr hungri blush

Næsti saumadagur er 28 janúar

Nýjar myndir í albúmi

 

 

12.01.2014 21:18

Nýtt ár

GLEÐILEGT N'YTT SAUMA ÁR smiley

Við byrjum að sauma næsta þriðjudag 14 janúar á sama stað og venjulega í Heiðarskóla kl 15

Við hittumst s.l þriðjudag og spjölluðum og settum niður saumadaga og ætlum við að sauma annan hvern þriðjudag fram á vor

Í byrjun maí skellum við svo okkur í heimsókn til Færeyja þar serm við eigum heimboð í Fuglafjörð og ætlum við að sýna þeim hvað við erum að gera

 

30.12.2013 16:28

 

25.11.2013 16:17

Saumadagur

Síðasti saumadagur fyrir jól verður n.k þriðjudag á sama stað og tíma og venjulega

23.11.2013 17:00

Saumadagur

Við saumuðum nokkrar s.l þriðjudag í Heiðarskóla

Það fer að styttast hjá okkur fram að jólum þessa dagana tíminn líður svo hratt

Næsti saumadagur er áætlaður næsta þriðjudag á sama tíma og venjulega

Nýjar myndir eru í albúmi 

14.11.2013 11:48

Við saumuðum s.l þriðjudag

Brynja Kjerúlf gaf okkur öllum þessa flottu uppþvottabusta sem hún prjónar og klæðir í borðtuskur

Takk fyrir okkur Brynja flott gjöf smiley

  Næsti saumadagur er á næsta þriðjudag og er langur  

 það fer að styttast hjá okkur þetta árið tveir saumadagur eftir og kanski jólafundur 

Örfáar nýjar  myndir í albúmi 

 

14.11.2013 11:40

Saumadagur

10.11.2013 11:06

Saumadagur

Við hittumst og saumuðum til kl 20 s.l þriðjudag

Engar myndir frá þeim degi verða bara næst

Næsti saumadagur verður þriðjudaginn12 nóvember

30.10.2013 12:31

Endurnýttar gardínur verða að veglegri stikutösku

 

Eins og kom fram fyrir nokkru fluttum við úr húsnæði sem við vorum búnar að gera svo flottar gardínur sem þjónuðu engum tilgangi lengur

Upp kom hugmynd í haust áður en við fórum á Löngumýri að endurnýta gardínurnar og sauma tösku fyrir stikurnar og sniðamottuna okkar

Einn saumadag var hafist handa og hjálpuðumst við allar að og kláraðist taskan áður en við fórum í ferðina og eru stikurnar vel varðar

Þetta var skemmtilegt verkefni og sniðug hugmynd

Set myndir í albúm af saumaskapnum

 

30.10.2013 10:39

Saumadagur

Saumadagur var hjá okkur í gær og var góð mæting

 

Ákveðið var að sauma alla næstu þriðjudaga og hafa langan annan hvern þriðjudag og verður þá næsti langur

Vegna anna verður þá ekki langur laugardagur eins og fyrirhugað var 19 nóvember

Vorferð okkar Skraddaralúsa var ákveðin og stefnum við á að fara til Færeyja í Fuglafjörð þar sem við eigum heimboð og ætlum við að sýna þeim og kanski kenna eitthvað skemmtilegt og er fyrihugað að fara í apríl eða maí

Brynja kom og saumaði með okkur og kláraði hún teppið

 

Við erum að sauma í Heiðarskóla þar er mjög rúmgott og góð saumaaðstaða í borðsalnum

 

 

Næsti saumadagur verður þá næsta þriðjudag LANGUR

 

Nýjar myndir í albúmi

28.10.2013 17:40

Saumadagur

Næsti saumadagur er á morgun þriðjudaginn 29 október á sama tíma og stað eins og venjulega smiley

21.10.2013 11:02

Saumadagur

Við hittumst s.l þriðjudag og saumuðum á sama stað og venjulega

Við fengum gesti í heimsókn Oddvör frá Færeyjum sem kom til að sjá hvað við gætum kennt þeim í Færeyjum í bútasaum og Sólrún og Sara Björt komu með henni 

 

Svo kom Brynja Kjerúlf of saumaði með okkur

Tíminn líður svo hratt það líður senn að jólum áður en maður veit

Næsti saumadagur verður 29 október

Nýjar myndir í albúmi

Flettingar í dag: 212
Gestir í dag: 21
Flettingar í gær: 215
Gestir í gær: 60
Samtals flettingar: 100720
Samtals gestir: 10340
Tölur uppfærðar: 4.6.2023 13:43:51


Umsjón með vefsíðu Sigrún Sólmundardóttir

Nafn:

Skraddaralýs

Heimilisfang:

Hvalfjarðarsveit

Um:

Við erum hópur kvenna sem hittumst reglulega og saumum bútasaum Umsjón vefsíðu Sigrún Sólmundardóttir Belgsholti
clockhere

Tenglar