Við fórum 4 skraddaralýs á saumahelgi að Eiðum um helgina
Flugum austur um miðjan dag á fimmtudag þar tóku á móti okkur nokkrar sprettur og keyrðu okkur á áfangastað sem var gamli barnaskólinn á Eiðum
Við komum okkur fyrir og var byrjað fljótlega að sauma og fór konum að fjölga þegar líða tók á daginn
Um kvöldið var farið með okkur á Egilstaði og borðuðum við þar dýrindis
máltíð á gamla Egilstaðabúinu sem rekið er sem hótel núna áttum við þar góða kvöldstund síðan var farið aftur heim og byrjað að sauma og héldu þær bröttustuáfram fram á nótt
Föstudagurinn rann upp og byrjaði með morgunmat og síðan var haldið áfram að sauma með matarhléum
Um kvöldið fengum við óvissuverkefnið og er það alltaf jafn spennandi það reyndist vera motta undir saumavélina til að geyma saumadót í t.d skæri og fl sem þær Jórunn og Eygló sáu um
Laugardagurinn var eins áfram haldið að sauma og sýnikennsla alltaf hæt að læra eitthvað nýtt
Um kvöldið var veislumatur og síðan glens og gaman og konur sýndu verkefni sem þær voru búnar að gera eða voru með í framleiðslu
Nokkrar voru duglegar að fara út að labba til að fá gott loft í lungun en það var mikil hálka misgott göngufæri
Kvenfélagskonur úr sveitinni sáu um að við vorum ekki hafðar svangar þær sáu um að elda ofan í okkur og var veisla í hvert mál maturinn frábærlega góður ástarþakkir til ykkar allra sem þar komu að verki
Quiltbúðin var mætt á staðinn með fullt af efnum og tilheyrandi sem hægt var að versla og Kristrún alltaf til í að leiðbeina okkur ef þörf var á
Það má segja að þetta hafi verið töskuhelgi því margar saumuðu töskur sem hægt er að nota báðum megin úr flottum efnum
Sunnudagurinn rann upp og þá þarf að gera alllt sem maður ætlaði að sauma en tíminn er alltaf svo fljótur að líða á svona helgum að hann búinn áður en maður veit af
Við áttum flug heim kl 17 og var okkur keyrt út á flugvöll eftir að hafa átt yndislega góða helgi og kynnst mörgum nýjum konum sem enn bætast í sauma vinkonuhópinn
Takk kærlega fyrir frábæra helgi og vel skipulagða hver veit nema að við komum aftur að ári
Flugið heim var dálítið órólegt en bara gaman
Myndir í albúmi