10.01.2013 21:26
Við hittumst allar hressar og kátar s.l þriðjudag fullar af skemmtilegum hugmyndum
Eins og alltaf þá er mikið um að vera hjá okkur Skraddaralúsum
Við vorum með fund og skipulögðum starfið fram á vorið og verður nóg að gera hjá okkur
Við fáum suðurnesjalýsnar í heimsókn til okkar 22 janúar og ætlum við að sauma saman fram á kvöld og spjalla og hafa gaman
Við ætlum nokkrar að bregða okkur upp í flugvél 21 febrúar og fljúga til Egilstaða til að vera með Sprettunum á saumahelgi að Eiðum
18-21 apríl ætlum við svo að fara aftur í sumarbústað í Húsafelli eins og við gerðum s.l vor
Eins og sést hér verður skemmtilegur vetur framundan nóg að gera og ekki má gleyma saumadögunum þeir verða eins og við höfum verið með alla þriðjudaga og annar hver langur
nýjar myndir í albúmi