Talvan hjá síðustjóra er loksins komin í lag svo hægt er að setja inn myndir og blogga
Við erum búnar að sauma annan hvern þriðjudag og er alltaf góð mæting hjá okkur
Við vorum með námskeið í qrasy quilt 6 febrúar og vorum við 9 sem nýttum okkur það
Gunnlaugu Haraldsdóttur textílkennari kom til okkar og var hún hjá okkur einn dag
Var þetta mjög skemmtilegt og lærðum við margt hún kom með allt sem þurfti til að sauma efni blúndur og garn og saumuðum við 2 stykki hver og lærðum að bródera og perla til að skreyta nú vantar okkur ekki verkefni því það er hægt að nota alla búta af allskonar efnum og tilheyrandi skrauti bara halda áfram
Næsti saumadagur er á þriðjudaginn
Nýjar myndir í albúmi