Nú er þessum vetri að ljúka hjá okkur og komið vor
Við erum hættar að sauma nú í vetur en eigum eftir slúttið okkar
Við Olga fórum í vorferðina hjá íslenska bútasaumsfélaginu í um suðurnesin og áttum þar góðan dag með fólki með sama áhugamál og við
Bútasaumsýningin sem var í Perlunni nú í maí var glæsileg og gaman að skoða verkin þar
Set hér inn nokkrar myndir af síðustu saumadögum hjá okkur í apríl
Hittumst hressar aftur með saumavélarnar í haust