Við saumuðum í dag og var haldið áfram að hanna og sauma gardínurnar fyrir vinnustofuna okkar Allir afgangar voru tíndir til og saumaðir saman bæði ræmusaum og svo hálfkláraðar blokkir og bara allt sem til var saumað saman og út komu allskonar mynstur Við eigum þó samt eftir að klára og bæta við en erum langt komnar með það Þetta er mjög skemmtilegt verkefni hjá okkur þar sem við leggjum allt saman um að hanna þessi lystaverk Næsti ætlum við að sauma þriðjudaginn 28 febrúar og klárum þá verkefnið Nýjar myndir í albúmi
Við saumuðum í gær og var skemmtilegt verkefnið okkar Við erum að hanna gardýnur fyrir gluggana á nýju vinnustofunni okkar og verður spennandi að vita hvernig þær verða þegar til kemur Við vorum að læra pappírsaum sem sumar kunnu og kenndu okkur hinum Það var mikill spenningur og gaman að læra eitthvað nýtt Svo var dregið í Mug rug mottuleiknum og notum við þær til að skreyta hjá okkur vegg sem er í vinnustofunni og er skemmtilegt að sjá hugmyndirnar frá hverri og einni Það er alltaf að verða heimilislegra hjá okkur og er velkomið fyrir alla sem vilja heimsækja okkur á saumadögum að kíkja við og sjá hvað við erum að gera Við erum búnar að ákveða sumarbústaðarferð í Húsafell 20-22 apríl Næsti saumadagur verður á mánudaginn n.k Nýjar myndir í albúmi