Þá er frábærri saumahelgi í Ölver lokið
Við mættum í Ölver á föstudaginn um hádegi og byrjuðum að sauma
Við vorum 17 sem mættu í allt sumar voru alla helgina og aðrar sem komu og fóru eða skruppu bara aðeins í burtu í smá tíma
Á föstudagskvöldið var þessi fína kjúklingasúpa sem Olga eldaði og tilheyrandi meðlæti ástarþakkir fyrir það Olga
Á laugardaginn komu Ölfurnar vinarklúbbur okka í heimsókn og saumuðu með okkur fram eftir degi
Takk fyrir komuna stelpur alltaf gaman að hittast og sjá hvað þið eru að gera
Við fengum pottrétt frá Hótel Brú á laugardagskvöldið við máttum ekki vera að því að elda sjálfar svo voru þær María og Dísa búnar að föndra smá pakka handa okkur sem í var málband og lítill páskaungi svo dúllulegt hjá þeim
Eins og venjulega á svona saumahelgum er saumað langt fram á nótt og svo er farið í pottinn og slappað af og síðan smá lúr en alltaf vaknað snemma til að byrja aftur að sauma ekki slegið slöku við enda afreksturinn góður eftir svona helgi
Í Ölver var mjög gott að vera andinn góður í húsinu og öll aðstaða góð til að vera með svona saumahelgi María og Dísa sáu um allt skipulag fyrir þessa helgi að raða niður og hjálpuðumst við svo allar að með að gera þessa helgi góða og skemmtilega ástarþakkir til ykkar María og Dísa þetta var flott plan hjá ykkur
Það má ekki gleyma henni Ebbu systir Maríu sem kemur alltaf með okkur á svona saumahelgi hún kemur alla leið úr Skagafirði takk fyrir helgina elsku Ebba vonandi hefur heimferðin verið góð hjá þér
Tíminn líður allt of hratt því helgin er búin áður en við vitum af ALLTAJ JAFN GAMAN
myndir í albúmi