Á laugardaginn var langur saumadagur hjá okkur og fengum við góða gesti úr Ölfunum
Við byrjuðum að sauma kl 10 og vorum fram eftir degi og áttum mjög góða dag saman mikið saumað og skoðað
Það er alltaf gaman að hittast í góðra vina hópi við eflum svo hvor aðra með allskonar hugmyndum og sjá hvað hinar eru að sauma
Við buðum upp á rétt skraddaralúsa sem eru tortillur með kjúkling hakki og allskonar grænmeti og sósum sem tilheyra þetta er fljótlegt og þægilegt að hafa og hollt og gott
Ekki má gleyma tertunum og fíkjubrauðinu hans Kristjáns í Bjarkarási (manninum hennar Dísu) hann bakaði þetta góða brauð og sendi okkur takk fyrir það Kristján
Allar fórum við saddar og sælar heim eftir vel heppnaðan dag Takk fyrir komuna Ölfur
Okkur er boðið heim til hennar Helgu Hauks næsta þriðjudag svo það verður ekki hefðbundinn saumadagur höfum prjóna eða eitthvað að sauma í höndum með okkur
Nýjar myndir í albúmi