Sumardagurinn fyrsti var skemmtilegur hjá okkur Við fengum góða heimsókn frá Ölfunum í Kópavogi og var saumað frá morgni og fram eftir degi Við vorum allar 11 skraddaralýsnar mættar og gestirnir voru 5 Það er gaman að halda svona saumadag það er svo margt fróðlegt og skemmtilegt sem kemur framm og við lærum af hvor annari og miðlum af reynslu okkar Við komum með sitt lítið af hverju sem við höfum verið að gera til að sýna gestunum og fór það langt með að fylla eina kennslustofu í Heiðarskóla þar sást að við höfum ekki verið aðgerðarlausar í vetur Kæru Ölfur takk fyrir komuna þetta var frábær og skemmtilegur dagur og gaman að fá að kynnast ykkur betur
Nýjar myndir af saumadegi í albúmi
Nú er búið að auglýsa samahelgina á Löngumýri í haust og verðum við að ákveða fljótt hvaða helgi hentar okkur best
Næsti saumadagur verður þriðjudaginn 5 maí á sama tíma og stað eins og venjulega
Við skraddaralýs óskum öllum gleðilegra páska Það var grein í húsfreyjunni s.l tölublaði sem er blað Kvenfélagsambands Íslands um bútasaum og þar er smá um okkur og líka myndir og sagt frá fleiri klúbbum sem eru starfandi gaman gaman