Okkur barst sú sorgarfrétt um páskana að hún Kristrún í Quiltbúðinni væri látin
Okkur langar aðeins til að minnast hennar hér á síðunni okkar þar sem hún Strúna hefur verið stór hluti af okkur í mörg ár
Okkar kynni byrjuðu þegar við fórum að fara á saumahelgar á hverju hausti á Löngumýri og var tilhlökkunin alltaf jafn mikil hjá okkur að hittast og njóta þess sem var í boði hverju sinni
Kristrún var alltaf hrókur alls fagnaðar og var alltaf til í glens og gaman með okkur
Hún var hjálpleg og lærðum við mikið af henni alltaf fljót til að sníða eða bara spretta uppeða hvað sem er ef við þurftum á hjálp að halda
Það er ótrúlegt að hún svona lífsglöð og kát kona sé fallin frá í blóma lífsins en henni hefur verið ætlað annað hlutverk sem við skyljum ekki þeir deyja ungir sem guðirnir elska
Megi góður Guð gefa fjölskyldu hennar styrk á erfiðum tíma
Minning hennar lifir lengi í hjörtum okkar allra