Við hittumst hressar og kátar s.l þriðjudag og áttum saman góðan langan saumadag mikið hlegið og mikið gaman
Við vorum í miklu saumastuði og fengum við til okkar góðan gest Jónu úr Pjötlunum að vestan og saumaði hún með okkur og sýndi það sem hún er að sauma stutt fyrir hana að skreppa til okkar núna því hún er á Hvanneyri alltaf jafn gaman að fá svona saumavinkonur í heimsókn til okkar
Við glöddumst mikið með henni Birgittu okkar þar sem hún gat nú saumað með okkur smá eftir að hafa orðið fyrir óhappi á hægri hendi en vinsti getur gert ýmislegt þegar hún er þjálfuð upp ef viljinn er fyrir
Næsti þriðjudagur er frjáls mæting
Nýjar myndir eru í albúmi