Næsta þriðjudag 5 nóvember verður langur saumadagur hjá okkur
Mæting er eins og hver vill saumum eitthvað fram á kvöldið
Þegar við erum að sauma þá hefur mæting verið eins og hver vill og getur byrjað að sauma
Það er mikill munur síðan við fengum þetta húsnæði þá getum við saumað hvenær sem er og ef við erum í stuði
Nú fer senn að líða að jólum og fer þá að koma jólaspenningur til að sauma eitthvað fallegt sem tilheyrir alltaf jólunum
Ein Skraddaralúsin Olga Magnúsdóttir er í stjórn bútasaumsfélagsins og lærði hún að gera þessa flottu stjörnu á síðasta fundi og ætlar hún að kenna okkur hana einhverntíman