Við skraddaralýsnar áttum saman yndislega góða helgi í Húsafelli um helgina
Við vorum 7 lýsnar og ein nyt svo kom ein í heimsókn á laugardaginn
Helgin var vel nýtt mikið saumað prjónað og borðaður góður matur með öllu tilheyrandi farið í heita pottinn
Mug rug var opnað bæði kvöldin
Við gerðum mjög skemmtilegt verk sem voru skemmtilegar myndir af allskonar saumakellum og var flott að sjá þær allar samankomnar engin eins
´
á laugardagskvöldið sáum við sérkennilegan hlut á lofti eins og fljúgandi furðuhlut rauðleitt ljós kom og flögraði á himninum dágóða stund
Veðrið lék við okkur sól og blíða alla helgina en heldur kalt en það var alveg hægt að sitja í sólinni úti á palli og slappa af
Bústaðurinn sem við vorum í var mjög flottur og rúmgóður og eigum við örugglega eftir að fara aftur seinna
Myndir í albúmi