Nið fórum á Löngumýri helgina 22-25 september sem er orðið árlegt hjá okkur alltaf sama helgin með hressum saumavinkonum frá öllum landshlutum alltaf bætast nýjar við í hópinn og aðrar detta út
Við vorum 7 skraddaralys sem fórum þetta árið fórum á tveimum jeppum drekkhlöðnum svo að við varla komumst fyrir bara troðið þar sem var einhver smuga
Fyrsta stopp var Borgarnes til að hlaða enn meira í bílana María og Gerða voru bílstjórarnir
Við stoppum alltaf á leiðinni norður í pottinum og pönnunni á Blönduósi og fáum okkur að borða
Þegar komið er á Löngumýri eru saumavélarnar teknar upp og byrjað að sauma fram á nótt en þetta árið var bara mjög rólegt og afslappað notið þess að slappa af og spjalla saman sem er nauðsynlegt í svona ferðum
Verkefnin þetta árið voru flott stutt og góð svo nægur tími var í að sauma annað sem konur voru með svo er quiltbúðin á staðnum með vörur til að bæta okkur upp ef við verðum verkefnalausar
Á laugardaginn var haldið áfram að sauma til kl 5 þá var pottapartý með tilheyrandi skemmtun
Um kvoldið var kvöldvaka og konur sýndu verkin sín alltaf gaman að sjá hvað aðrar eru að gera
Sunnudagurinn rann upp og saumað var fram yfir hádegi síðasti tíminn nýttur í botn áður en haldið er heim
Maturinn á Löngumýri klikkar aldrei alltaf veislumatur alla dagana Takk fyrir okkur elsku eldhúskonur sjáið um að við sveltum ekki og förum ekki svangar frá Löngumýri
Tíminn líður svo hratt þessa daga að ekki veitir af því að fara að hafa vikudvöl það er svo margt sem við ætlum að gera
Kristrún Sísa og Hrafnhildur þið klikkið aldrei ástarþakkir fyrir okkur
Við eigum orðið svo margar frábærar saumavinkonur eftir þessar helgar
Heimferðin gekk vel enda bíllinn drekkhlaðinn
Við stoppuuðum í Staðarskála og fengum okkur að borða ekki slegið slöku við í þeim málum
Heim komum við allar sælar og saddar eftir góða og skemmtilega helgi og erum farnar að hlakka til næsta árs