Nú eigum við bara eftir að hittast einu sinni enn til að sauma á þessu ári 7 desember þá verðum við komnar í jólafrí
Við saumuðum síðasliðinn þriðjudag og vorum í miklu saumastuði og var mikið saumað
Tíminn hefur flogið frá okkur þetta haustið en samt mikið búnar að gera bæði farið á saumahelgi að Löngumýri heimsótt suðurnesjalýsnar og Ölfurnar og farið á árshátíðina hjá ísl bútasaumsfélaginu svo eitthvað sé nefnt og svo má ekki gleyma öllum prjóna og saumaskapnum okkar
Hittumst hressar og kátar 7 desember á sama stað og venjulega