Þá erum við búnar að fara á Löngumýri þetta árið og alltaf er jafn gaman hjá okkur
Að mestu leiti er þetta sami hópurinn af konum allstaðar af landinu sem hittist þessa helgi árlega til þess að þenja saumavélarnar dag og nótt alveg eins og í formúlunni
Við fóru 10 skraddaralýs í rútunni hennar Maríu norður og hún sem bílstjóri með dýrmætan farm drekkhlaðnar af faragri sem fyllti næstum því rútuna 8 sæti frá gólfi og upp í topp
Við stoppuðum á Blönduósi og fengum okkur að borða kvöldmat á pottinum og pönnunni
Komum að Löngumýri um kl 20 þá var byrjað að finna sitt borð og taka upp saumavélina og tilheyrandi verkfæri til að sauma langt fram á nótt og ekki var slegið slöku við frekar en vanalega
Við fengum mjög flott verkefni til að sauma þetta árið og var gaman að sjá mismunandi útkomu það var ekkert eins bara flott litadýrð
'Ovissuverkefnið litla var líka skemmtilegt sem kemur að góðum notum hjá einhverjum
Á laugardag seinni part dags var farið í heita pottinn með tilheyrandi skemmtun og um kvöldið var kvöldvaka og margar konur sýndu verk sín
Sunnudagurinn rann upp og var saumað framm yfir hádegi síðasti tíminn nýttur í botn hver mínúta
Það var varla tími til að taka matarhlé þessa dagana en við létum það ekki eftir okkur enda ekki hægt þar sem að það var veislumatur alla dagana hver öðrum betri morgumn hádegi kaffi og kvöldmatur alla dagana
Takk fyrir okkur elsku eldhúskonur þið eigið heiður skylið þið hugsið svo vel um okkur þessa daga
Tíminn leið svo hratt að helgin var búin áður en varði við þyrftum að bæta við einum degi það er svo margrt sem við ætlum okkur að gera
Kristrún Sísa og Nansý ástarþakkir fyrir okkur þetta er alltaf jafn gaman
Heimferðin gekk vel í miklu roki og rigningu enda drekkhlaðnar að bíllinn haggaðist ekki enda með frábæran og vanan bílstjóra knús á þig og ástarþakkir María okkar
Við stoppuðum í Staðarskála á leiðinni heim auðvitað til að fá okkur að borða ekki slegið slöku við í þeim málum
Heim komum við allar sælar og ánægðar eftir frábæra helgi með skemmtilegum konum strax farnar að hlakka til sama tíma að ári með bros á vör