Við fórum 3 á opnun sýningarinnar bút fyrir bút í 30 ár í tilefnis 10 ára afmælishátíðar íslenska bútasaumsfélagsins þar er að sjá mjög flott verk sem gaman var að sjá Við erum stoltar af okkar konum Maríu og Dóru þær eiga báðar teppi á sýningunni
Svo er það árshátíðin næsta laugardagskvöld á hótel Sögu og ætlum við nokkrar að fara þangað
Næsti saumadagur er á morgun kl 3 á sama stað og venjulega og nú er það undirbúningur fyrir Löngumýri það er alveg að skella á ví ví ví gaman það er bara í næstu viku