Við fórum til Reykjavík s.l þriðjudag og hittum þar suðurnesjalýsnar sem höfðu heldur betur stækkað þar komu 4 nýjar konur með
Við byrjuðum á því að fara í Virku til að skoða efni þar í jóladúkinn sem við ætlum allar að sauma eins þó verður hver með sinn og velur sína liti það verður spennandi að sjá þá alla þegar við erum búnar að sauma þá
Svo kíktum við í storkinn þar höfðu sumar aldrei komið
Það var auðvitað verslað smá eins og gengur og gerist í svona ferðum
Við borðuðum saman á veitingahúsinu Caruso og fengum þar mjög góðan mat
Komum við allar saddar og sælar heim eftir góðan dag
Þetta var lokahittingur á þessu vori svo er bara að sjá til´hvernig sumarið verður ef það verða margir rigningardagar þá kanski hittumst við og gerum eitthvað skemmtilegt
Það eru nýjar myndir í albúmi frá sýningunni á sumardaginn fyrsta