Á laugardaginn fórum við í heimsókn til Reykjavík og saumuðum með Ölfunum Þetta var skemmtilegur dagur og margt og mikið saumað og spekulerað Það er alltaf gaman að hittast og sauma saman það eflir okkur og styrkir því við lærum alltaf eitthvað nýtt og gagnlegt sem kemur okkur vel svo koma alltaf einhverjar nýjar hugmyndir fram sem okkur langar að framkvæma en það er svo skrýtið að tíminn líður svo hratt að ekki er alltaf hægt að gera allt Kæru Ölfur takk fyrir flottar móttökur og skemmtilegan dag
Næsti saumadagur verður á þriðjudaginn 10 nóv og ætlum við að hafa hann langan og byrja kl 15 og sauma fram á kvöld