Við fengum góða heimsókn í gærkveldi þegar Skagaquilt konur komu til okkar Við áttum saman góða og skemmtilega kvöldstund heima hjá Dóru í Leirárgörðum og buðum við þeim upp á súpu og heimabakað brauð Við sýndum þeim verkin okkar og þær komu með sín svo var mikið spjallað um bútasaum auðvitað
Það er gaman að sjá hvað aðrir eru að gera það er alltaf eitthvað nýtt að sjá og hægt að læra af því Við ætlum að hittast aftur í haust og erum við farnar að hlakka til Elsku Dóra takk kærlega fyrir að taka á móti okkur Læt hér fylgja uppskriftina af súpunni góðu það voru svo margar sem vildu fá hana Set svo myndirnar inn í myndaalbúm þær sem þekkja nöfnin sem vantar og verkin viljið þið vera svo vænar að skrifa við myndirnar
Kjúklingasúpa
3-4 msk olía á pönnu
1 1/2 msk karrý
1/2 - 1 hvítlaukur marinn
1 púrrulaukur
3 paprikur ein af hverjum lit
allt steikt á pönnu
1 dós rjómaostur 400 gr í bláu dósunum
1 flaska Heinz chilisósa verður að vera Heinz
1 grænmetisteningur
3 kjötkraftur
1/2 líter rjómi
1 1/2-2 lítrar vatn
salt og pipar
6-8 kjúklingabringur skornar í bita
þær steiktar og kryddaðar með töfrakryddi
bringurnar settar í lokin