Við fórum til Reykjavíkur s.l þriðjudag að sauma með Ölfunum
Við vorum 4 sem fórum og mættum við kl 5 og saumuðum fram á kvöld
Alltaf er jafn gaman að hittast og sjá hvað aðrir eru að gera og læra eitthvað nýtt og bæta við fleiri hugmyndum í safnið
Takk kærlega fyrir okkur Ölfur
Það er svo margt sem maður ætlar að gera og langar til en tíminn flýgur svo hratt núna það er bara farið að styttast óðum saumadagarnir hjá okkur á þessum vetri
Næsta þriðjudag ætlum við að fara í heimsókn til suðurnesjalúsanna og ætlum okkur að læra eitthvað nýtt þar
Svo er það sumarbústaðurinn í Húsafelli 18 apríl
Nýjar myndir í albúmi