SAGA SKRADDARALÚSA ( frá byrjun ) 2006
Klúbburinn sem slíkur byrjar árið 2006. Þannig var að við höfðum verið að sauma saman nokkrar konur í Hvalfjarðarsveit í þó nokkurn tíma og ákváðum að fara að Laugum í Sælingsdal á saumahelgi hjá Bót.Þar voru nokkrir konur komnar saman til að sauma
Þar hittum við Reykjaneskonurnar og var okkur boðið að koma í Flagbjarnarholt til Gerðu eftir áramótin 2006/7.
Þar mættum við og 3 úr Reykjanesbæ, þær Gerða, Gauja og Ásta og úr Hvalfjarðarsveit Birgitta, Dóra, María Selma og Dísa
. Margir bútasaumshópar bera skemmtileg nöfn og í Flagbjarnarholti fór nafnlausi hópurinn okkar að vinna í því að finna nafn sem væri snjallt og grípandi. Einhver mundi eftir að skemmtilegt orð var notað yfir spotta sem festist í fatnaði þeirra er voru að sauma. Við höfðum mikið fyrir því að rifja upp hvaða orð þetta væri. Við hringdum út og suður í eldri konur sem við töldum að myndu þetta. Það var síðan hún Vilborg Kristófersdóttir á Læk íeirársveit sem hafði upp á nafninu og kom því til okkar. Þar með var nafnið SKRADDARALÝS, komið til að vera.
Klúbburinn heldur úti heimasíðu og slóðin á hana er skraddaralys.
Við sem erum búsettar í Hvalfirði hittumst í Heiðarskóla og sumum 2 þriðjudaga í mánuði stundum alla þriðjudaga ef vel liggur á okkur
Við byrjum saumaskapinn svona um mánaðarmótin ágúst/september, síðan förum við á saumahelgi Síðustu 5 árin höfum við farið á Löngumýri í Skagafirði til Kristrúnar í Quiltbúðinn á. Einnig höfum við farið að Vöðlum til Ástu í janúar.og til Gerðu í Flagbjarnarholt Eitt sinn vorum við í Ölver Við höfum hitt konurnar í Skagaquilt hópnum og Ölfurnar í Kópavogi svona 1x á vetri. Við skemmtum okkur alltaf konunglega saman og þegar við förum á saumahelgar er mikið fjör mikið saumað en lítið sofið, hlegið og skvaldrað fram eftir öllu.
Ef við erum í miklu stuði tökum við okkur langan dag og saumum þá á laugardeg
Saga okkar skraddaralúsa núna 2024
Við erum hópur kvenna sem höfum sameiginlegt áhugamál bútasaum og allt sem tilheyrir hannyrðum.
Við hittumst hálfsmánaðarlega í Miðgarði , byrjum um mánaðamótin ágúst-september Við komum saman og saumum eða prjónum og drekkum kaffi saman Það kemur fyrir að við erum að deyja úr myndaskap þá hittumst við vikulega ef svo ber undir Stundum eru langir saumadagar hjá okkur og hittumst við þá snemma dags og saumum fram á kvöld
Í gegnum tíðina höfum við farið á saumahelgar vítt og breitt um landið. Má nefna Vaðla og Flagbjarnarholt á Suðurlandi, Löngumýri í Skagafirði þar sem Quiltbúðin hélt utanum starfið. Við förum árlega á vorin á saumahelgi í Vatnaskógi og bjóðum gestum með okkur og er mikið saumað. Þar er dekrað við okkur alla helgina frá morgni til kvölds með mat og jafnvel skemmtiatriðum. Við höfum líka farið haustferð á Laugarbakka í Miðfirði og vorferð á Hótel Örk , á saumahelgi hjá Bóthildi og líka á Reykjanes við Ísafjarðardjúp hjá Pjötlunum. Eitt sinn fórum við með flugi á Egilsstaði með allt okkar hafurtask og hittum Spretturnar. Við skemmtum okkur alltaf konunglega saman og þegar við hittumst á saumahelgum er mikið fjör, mikið saumað, mikið hlegið og skvaldrað fram eftir öllu en lítið sofið.
Eitt árið fórum við nokkrar til Færeyja til að kenna konum þar bútasaum, það var mikil upplifun fyrir okkur að vera þar eina helgi. Þar var vel tekið á móti okkur eins og venjan er í Færeyjum. Fengum við að smakka á skerpukjöti en ekki voru allar jafn hrifnar af því. í október 2023 er fyrirhuguð vikuferð með Íslenska bútasaumsfélaginu í heimsókn til Amish fólksins í Bandaríkjunum.
Við höfum haldið sýningu á verkum okkar í Fannahlíð, Miðgarði Stjórnsýsluhúsinu á vökudögum á Akranesi og á Hvalfjarðardögum sem tókst mjög vel og fengum við marga gesti þar
Á vorin förum við í skoðunarferð og gerum okkur glaðan dag með því að skoða eitthvað skemmtilegt og borðum saman síðast fórum við á Selfoss og Hveragerði
Í desember er jólafundur oftast í heimahúsi þá borðum við góðan mat t.d eitthvað jólatengt síðan erum við með pakka og skiptumst á gjöfum
Við saumuðum 27 teppi sem við færðum leikskólanum sem þakklætisvott til Hvalfjarðarsveitar fyrir aðstöðu fyrir saumadagana okkar
Við eigum vinkonusaumaklúbb Ölfurnar og er í Kópavogi og líka Suðurnesjalýsnar sem hafa verið frá upphafi klúbbsins það má með sanni segja að samskiptin eru alltaf skemmtileg í kring um þetta áhugamál.
SAGA SKRADDARALÚSA ( frá byrjun ) 2006
Klúbburinn sem slíkur byrjar árið 2006. Þannig var að við höfðum verið að sauma saman nokkrar konur í Hvalfjarðarsveit í þó nokkurn tíma og ákváðum að fara að Laugum í Sælingsdal á saumahelgi hjá Bót.Þar voru nokkrir konur komnar saman til að sauma
Þar hittum við Reykjaneskonurnar og var okkur boðið að koma í Flagbjarnarholt til Gerðu eftir áramótin 2006/7.
Þar mættum við og 3 úr Reykjanesbæ, þær Gerða, Gauja og Ásta og úr Hvalfjarðarsveit Birgitta, Dóra, María Selma og Dísa
. Margir bútasaumshópar bera skemmtileg nöfn og í Flagbjarnarholti fór nafnlausi hópurinn okkar að vinna í því að finna nafn sem væri snjallt og grípandi. Einhver mundi eftir að skemmtilegt orð var notað yfir spotta sem festist í fatnaði þeirra er voru að sauma. Við höfðum mikið fyrir því að rifja upp hvaða orð þetta væri. Við hringdum út og suður í eldri konur sem við töldum að myndu þetta. Það var síðan hún Vilborg Kristófersdóttir á Læk íeirársveit sem hafði upp á nafninu og kom því til okkar. Þar með var nafnið SKRADDARALÝS, komið til að vera.
Klúbburinn heldur úti heimasíðu og slóðin á hana er skraddaralys.
Við sem erum búsettar í Hvalfirði hittumst í Heiðarskóla og sumum 2 þriðjudaga í mánuði stundum alla þriðjudaga ef vel liggur á okkur
Við byrjum saumaskapinn svona um mánaðarmótin ágúst/september, síðan förum við á saumahelgi Síðustu 5 árin höfum við farið á Löngumýri í Skagafirði til Kristrúnar í Quiltbúðinn á. Einnig höfum við farið að Vöðlum til Ástu í janúar.og til Gerðu í Flagbjarnarholt Eitt sinn vorum við í Ölver Við höfum hitt konurnar í Skagaquilt hópnum og Ölfurnar í Kópavogi svona 1x á vetri. Við skemmtum okkur alltaf konunglega saman og þegar við förum á saumahelgar er mikið fjör mikið saumað en lítið sofið, hlegið og skvaldrað fram eftir öllu.
Ef við erum í miklu stuði tökum við okkur langan dag og saumum þá á laugardeg
Við sem erum í klúbbnum eru
María Lúísa Kristjánsdóttir, bílstjóri,
, Selma Ólafsdóttir húsmóðir,
Sigrún Sólmundardóttir sjúkraliði,
Heiðrún Sveinbjarnardóttir bóndi,
Vigdís Guðjónsdóttir kennari
Edda Soffía Karlsdóttir
Sigríður Karlsdóttir
Ingibjörg Guðjónsdóttir
María Sigurðardóttir
Svana Guðmundsdóttir
Brynja Kjerúlf
Suðurnesjalýs
Ástríður Guðjónsdóttir kennari, Guðríður Guðjónsdóttir bankastarfsmaður og Valgerður Þorvaldsdóttir húsmóðir, eru búsettar á Reykjanesinu..
i.