15.11.2011 23:15
Við erum búnar að vera duglegar að sauma höfum hittst á hverjum þriðjudegi og byrjað kl 13 og stundum fyrr til að nota daginn vel og saumum fram eftir degi
Næsti saumadagur er þriðjudaginn 22 nóvember
07.11.2011 16:11
Langur sunnudagur var hjá okkur 6 nóvember í stjórnsýsluhúsinu
Mættum við kl 10 og byrjuðum að sauma og vorum til kl 17
Við vorum 12 sem mættun 4 suðurnesjalýs komu til að sauma með okkur
María og Dísa sáu um veitingarnar í hádeginu skyr með rjóma og nýbakað brauð með tilheyrandi
Kaffimeðlæti var samskot sem allar komu með
Ýmislegt er verið að sauma eins og teppi dúkar löberar svuntur töskur og fleira nytsamlegt
Jólin nálgast óðum svo nú er tilvalið að búa til jólagjafirnar
Næsti saumadagur er á morgun á sama stað og venjulega
Nýjar myndir í albúmi
02.11.2011 11:39
Næsta sunnudag 6 nóvember verður langur saumadagur hjá okkur skraddaralúsum
Við byrjum að sauma kl 10 og verðum fram eftir degi
Við erum til húsa í stjórnsýsluhúsinu í Hvalfjarðarsveit