Við hittumst allar hjá mér í gærkvöldi 100% mæting og var mjög gaman hjá okkur eins og vanalega Borðuðum við fiskisúpu a la Sigrún og smakkaðist hún það vel að uppskriftin kemur hér í lokin Mikið vorum við spenntar að byrja að sauma og helst ætlum við að gera allt sem okkur langar í því hugmyndirnar voru svo margar Sumar komu með það sem þær voru búnar að sauma síðan síðast sem sýndi að við höfum ekki bara verið í sólbaði í sumar nei alls ekki Nú ætlum við að byrja að sauma á næsta þriðjudag í Heiðarskóla kl 15 og þær fyrir sunnan byrja í hesthúsinu þannig að nú fer allt á fullt hjá okkur Við vorum svo ákafar að það er búið að ákveða aðra saumahelgi á Vöðlum hjá Ástu og verður hún 8 janúar 2009 Nýjar myndir í albúmi Takk kærlega fyrir komuna stelpur þetta var mjög gaman kveðja Sigrún
Já Já takk fyrir síðast og frábært að fá uppskriftina af súpuni........bara spurning hvort kokkurin geti ekki fylgt?????
Hlakka til að fara að sauma kv
sælar allar og takk fyrir þetta yndislega kvöld og ég tala ekki um súpuna :-)...Svo er spennandi að fiylgjast með hvaða stefnu hjartað hennar Heiðu tekur þið vitið ..verður það ???? era ???? bíðum bara spenntar :) kv.
Jú það var gaman ígær að byrja við hugsuðum og söknuðum þín Ég mætti frekar seint en náði þó að sníða í eitt barnateppi Nú þurfum við bara að vera duglegar að sauma fram að Löngumýri hefðum þurft að hittast aftur í næstu viku Kveðja Sigrún
Ég er alveg til í að sauma á á þriðjudaginn ekki veitir af að komast í saumagírin, allavega eru verkefnin alveg óteljandi.Kveðja og takk fyrir sendinguna Birgitta
4.9.2008 kl. 21:33
13.8.2008
Hittingur
Nú er búið að ákveðja fyrsta hitting haustsins 2008 það verður í Belgsholti þriðjudaginn 26 ágúst kl 20 eða viljið þið hafa það fyrr um daginn látið mig þá vita Þá hittumst við og komum kanski með einhverjar hugmyndir og líka afrekstur sumarsins kíkjum á blöð og fl smá upphitun Dóra það hljóta að vera einhverstaðar til saumavélar til að lána þér þú færð ekkert frí frá okkur það verða einhver ráð með það Núna líður tíminn hratt við förum bráðum á Löngumýri bara 49 dagar Hlakka til að sjá ykkur kv Sigrún
Takk fyri framtakið....... ég veit ekki betur en ég sé á lausu og kem að sjálfsögðu, ég á nýjar bækur og smá verkefni sem ég kem auðvitað með.
Hlakka til að hittast aftur KVEÐJA
þið megið alveg mæta fyrr t.d kl 6 ef það er betra hlakka til að sjá ykkur allar kveðja Sigrún
19.8.2008 kl. 23:50
7.8.2008
Bráðum byrjar skemmtunin
Jæja stelpur núna fer að líða að fyrsta saumadeginum okkar eftir frábært sumar og mætum allar sólbrúnar og sælar fullar af orku og fjöri eins og vanalega .Við ætluðum að byrja að sauma um leið og skólinn byrjar svo það er bara alveg að koma að því Við erum örugglega allar farnar að hlakka til að hittast og byrja að saumaog spjalla.Sumar hafa verið eitthvað að sauma í sumar og set ég myndir í albúmið af því ef þið eruð með myndir þá endilega sendið til mín Núna þurfum við bara að ákveða hvaða dag við byrjum Kveðja Sigrún
Góður dagur til að hefja vetrarstarfið en eigum við ekki að byrja á að koma saman eins og í fyrra í spjall og skipuleggja veturinn koma með nýjar bækur eða blöð og verkefni sem við höfun gert.
Bara hugmynd.
Flott, við byrjum þá 26. ágúst hjá Sigrúnu.
En hvernig er þetta með baðið hjá þér María, hvenær eigum við að taka það út?
Hlakka til að hitta ykkur kv: Dóra
Er á algjöru slugsi og var að skoða nýjust myndirnar. Þið eruð alveg frábærar og greinilega ekki slegið slöku við í sumar. Ég fór inn í saumaherbergi í gærkvöldi og hvað haldið þið, saumavélin ætlar að vera lengur í fríi verð að láta kíkja á hana. kv. Dóra